Refund policy

Eftir að vara hefur verið keypt hefur kaupandi 14 daga til að endursenda hana, að því tilskildu að varan hafi ekki verið notuð og að hún sé í fullkomnu ástandi í upprunalegum og óskemmdum umbúðum, og að innsigli hafi ekki verið rofið ef við á. Greiðslukvittun þarf að fylgja með.

Varan er endursend með þjónustu Dropp, nánari upplýsingar má finna á vefsíðu Dropp (www.dropp.is/voruskil). Kaupandi ber ábyrgð á kostnaði vegna endursendinga vöru ef heimilt er að skila henni.

Endurgreiðsla er framkvæmd með því að færa fjárhæð jafn háa verði vöru sem skilað var á sama greiðslukort og notað var við kaup hennar. Að öðrum kosti er hægt að skipta í aðra vöru vefverslunarinnar.

Ef vara er sannarlega gölluð þarf kaupandi að tilkynna vefversluninni það innan 14 daga frá afhendingu, og er þá varan endurgreidd að fullu inn á sama greiðslukort og kaupandi notaði við kaupin.